19.5.2011 | 20:09
Fyrsta bloggið
Þetta er fyrsta bloggið á þessari síðu. Við erum 10 krakkar (8 stelpur og 2 strákar) í Legó-hópnum Frumurnar eða The Cells eins og við köllum okkur á ensku. Við ætlum að keppa á Evrópumóti sem verður haldið þann 2. - 4. júní í Delft í Hollandi. Með okkur koma 3 farastjórar. Það er Eiríkur liðstjóri (kennarinn okkar) og svo Stjáni og Hjördís.
Við áttum síðu sem er http://lego-frumurnar.bloggar.is/ en ekki var hægt að setja inn myndir nema að borga. Við tókum þá ákvörðun að fá okkur annað blogg því það er frítt. Það er mjög dýrt að fara í ferð til Hollands og höfum við bæði óskað eftir styrkjum auk þess sem við höfum sjálf safnað pening. Fjölmargir aðilar hafa lagt okkur lið og þökkum við þeim öllum fyrir.
Í dag fórum við í Landsbankann á Höfn en hann bæði styrkir okkur með fjárframlagi og gefur okkur krökkunum töskur fyrir ferðalagið. Þá fengum við líka afhentan styrk frá Kiwanisklúbbnum Ós en við hjálpuðum til við sölu K lykilsins í síðustu viku.
Það má lesa meira um legókeppnina á Íslandi heimasíðu keppninnar http://firstlego.is/ og hér má lesa allt um mótið sem við erum að fara á.
Kveðja Frumurnar .
Flokkur: Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 21:03 | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Myndaalbúm
Af mbl.is
Íþróttir
- Fjalla um þjóðhetjuna Eygló
- Brynjari fúlasta alvara þurfum að taka út ruslið
- Leeds tveimur sigrum frá úrvalsdeildinni
- Landsliðskonan með stórleik í úrslitum
- Sara Björk með stórleik
- Bikarmeistararnir skoruðu fjögur
- Vestri áfram eftir vítakeppni
- KR þarf einn sigur í viðbót
- Brynjar Karl býður sig fram í forsetakjörinu
- Átta mörk og tvö rauð spjöld í Garðabæ
Athugasemdir
Ljómandi góð síða
Einar
S. Einar Sigurðsson, 19.5.2011 kl. 20:38
Flott síða!
Sigrún Birna (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 17:34
Hugsa til ykkar. Hlakka til að heyra hvernig þið hafið það þarna úti. Gangi ykkur rosalega vel!
Íris Heiður (IP-tala skráð) 2.6.2011 kl. 22:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.